Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. apríl 2019 11:07
Elvar Geir Magnússon
Sergio Ramos á málverk þar sem hann er í hlutverki Jesú
Ramos hefur verið mjög sigursæll með Real Madrid og spænska landsliðinu.
Ramos hefur verið mjög sigursæll með Real Madrid og spænska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Síðasta kvöldmáltíðin er eitt frægasta málverk allra tíma, málað af Leonardo da Vinci. Þar sést Jesús Kristur borða síðustu kvöldmáltíðina með lærisveinum sínum.

Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, er mikill listunnandi og á mörg flott listaverk.

Spænskir fjölmiðar greina frá því að á heimili hans megi meðal annars finna eftirlíkingu af málverkinu fræga, nema Sergio Ramos er í hlutverki Jesú.

Á málverkinu er einnig kærasta hans, sjónvarpskonan Pilar Rubio, og liðsfélaginn Marcelo.

Í væntanlegri heimildarmynd um Ramos verður meðal annars fjallað um áhuga hans á listinni en myndin kemur út hjá Amazon Prime síðar á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner