Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 16. maí 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ekki satt að Coutinho verði skipt út fyrir Griezmann"
Mynd: Getty Images
Frakinn Antoine Griezmann er á förum frá Atletico Madrid í sumar.

Líklegasti áfangastaðurinn fyrir hann er Barcelona, en ef hann fer til Barcelona þá munu eflaust vakna spurningar um stöðu Philippe Coutinho hjá Katalóníustórveldinu.

Coutinho hefur ekki náð sér á strik frá því hann var keyptur frá Liverpool fyrir 142 milljónir punda í janúar 2018. Hann er ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum Barcelona.

Coutinho hefur meðal annars verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina, til Chelsea eða Manchester United, en umboðsmaður hans segir það ekki satt að Griezmann muni leysa hann af hólmi.

„Það er ekki satt að Coutinho verði skipt út fyrir Griezmann," sagði Andrea Bertolucci, umboðsmaður Coutinho, við AS.

Coutinho er samningsbundinn Barcelona til 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner