Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, var að vonum ánægður þegar að Valur vann sinn fyrsta sigur í sumar gegn Fylki í fjórðu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Leiknum lauk með 1-0 sigri Vals.
„Við erum búnir að bíða í þrjá leiki. Fyrsta markmið okkar var að halda okkar marki hreinu því við vitum að við fáum okkar færi. Við vorum þéttir tilbaka og þetta var virkilega sætt." sagði Haukur Páll eftir leik.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 1 Valur
Eins og fyrr segir var þetta fyrsti sigur Íslandsmeistara Vals á Íslandsmótinu og hafa þeir verið mikið í umræðunni, ekki síst vegna stöðu Gary Martin. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, neitaði hins vegar að tala um það og bannaði allar spurningar tengt öðru en leiknum. Haukur segir að stemmningin sé hins vegar fín í hópnum.
„Það hefur verið mikil umfjöllun um okkur en við reynum að ýta því til hliðar og gerðum það vel fyrir þennan leik."
Nánar er rætt við Hauk Pál í spilaranum að ofan.
Athugasemdir