Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. maí 2020 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Dortmund fögnuðu fyrir framan tóma stúku
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund og Schalke mættust í fjandslag og stórleik dagsins í þýska boltanum.

Liðin mættust í fyrsta leik eftir kórónuveirufrí og var leikið fyrir luktum dyrum.

Köll leikmanna heyrðust vel í útsendingunni og allt önnur stemning að fylgjast með leiknum en heimamenn stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar og lokatölur voru 4-0.

Að leikslokum eru leikmenn vanir því að fagna sigrum fyrir framan stuðningsmenn en í þetta sinn var enginn í stúkunni. Leikmenn Dortmund breyttu þó ekki háttum sínum og fögnuðu fyrir framan tóma stúku.


Athugasemdir
banner
banner