Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 16. maí 2020 07:30
Aksentije Milisic
Silva um Ronaldo: Hugarfar hans gerir hann frábæran
Silva og Ronaldo fagna.
Silva og Ronaldo fagna.
Mynd: Getty Images
Bernardo Silva, leikmaður Manchester City, segir að Cristiano Ronaldo sé alltaf hungraður í sigra, meira að segja á hverri einustu æfingu. Silva og Ronaldo spila saman með portúgalska landsliðinu og segir Silva að hugarfar Ronaldo gerir hann svona frábæran.

„Það sem gerir hann svona frábæran er hugarfarið hans. Hann er 35 ára og hefur verið í fremsta flokki í meira en fimmtán ár og hann er ekki þreyttur. Honum langar alltaf í meira," sagði Silva.

„Hann vill vinna Meistaradeildina aftur, honum langar í fleiri titla með landsliðinu, hann vill vinna deildartitla, hann vill skora fleiri mörk, hann vill vinna fleiri einstaklings titla.

„Það er sem er pirrandi við hann, er að á æfingum er staðan kannski jöfn og þjálfarinn segir að næsta mark sé úrslitamarkið. Þá skorar hann, það er alltaf hann. Ekki bara í leikjum heldur æfingum líka."
Athugasemdir
banner
banner