Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. maí 2020 14:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Haaland skoraði og tók áhugavert fagn
Haaland heldur áfram að skora.
Haaland heldur áfram að skora.
Mynd: Getty Images
Norski sóknarmaðurinn Erling Braut Haaland er ekki hættur að skora þrátt fyrir að vera í dag að spila sinn fyrsta fótboltaleik síðan í mars.

Það er kominn hálfleikur í leik erkifjendanna Dortmund og Schalke, og er staðan 2-0 fyrir Dortmund.

Haaland skoraði fyrra markið eftir laglega sókn Dortmund. Markið má sjá hérna. Norðmaðurinn efnilegi er núna búinn að skora tíu mörk í níu deildarleikjum fyrir Dortmund.

Það var athyglisvert hvernig leikmenn Dortmund fögnuðu markinu. Haaland tók ekki sitt venjulega zen-fagn, en tveggja metra reglan var virt eins og sjá má hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner