Ítalska félagið Salernitana er svo gott sem búið að bjarga sér frá falli úr efstu deild annað tímabilið í röð.
Sóknarmaðurinn Boulaye Dia hefur verið lykilþáttur í velgengni Salernitana með 15 mörk og 6 stoðsendingar í 32 leikjum.
Dia er hjá Salernitana á lánssamningi frá Villarreal með kaupmöguleika. Það þykir öruggt að ítalska félagið muni nýta kaupmöguleikann til að endurselja sóknarmanninn svo á tvö- til þrefalt hærra verði.
Talið er að Salernitana greiði um 11 milljónir evra fyrir Dia, og sé reiðubúið til að selja hann aftur fyrir á milli 25 til 35 milljónir.
Inter, Milan og Juventus eru meðal áhugasamra félaga sem vilja krækja í Boulaye Dia.
Athugasemdir