Inter 1 - 0 AC Milan (3-0 samanlagt)
1-0 Lautaro Martinez ('74)
Inter er búið að tryggja sig í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir frábæran sigur í hatrömmum nágrannaslag gegn AC Milan.
Liðin áttust við í dag eftir 0-2 sigur Inter í fyrri viðureigninni og úr varð skemmtilegur og opinn fótboltaleikur, þar sem bæði lið fengu góð færi.
Andre Onana og Mike Maignan áttu þó frábæra leiki á milli stanganna og vörðu frábærlega þegar þeirra var þarfnast.
Staðan var markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik en Inter tók völdin í síðari hálfleik og verðskuldaði sigurinn. Lautaro Martinez skoraði eina mark leiksins eftir sendingu frá Romelu Lukaku.
Inter mætir annað hvort Manchester City eða Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2010 sem Inter fer í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þá var Jose Mourinho við stjórnvölinn og vann Inter keppnina eftir úrslitaleik gegn FC Bayern.