Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. maí 2023 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Þór sló Leikni úr leik
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór 3 - 1 Leiknir R.
1-0 Aron Ingi Magnússon ('45)
2-0 Ion Perelló ('67)
2-1 Róbert Hauksson ('74)
3-1 Ingimar Arnar Kristjánsson ('82)


Lestu um leikinn: Þór 3 -  1 Leiknir R.

Þór er búinn að tryggja sig í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir flottan sigur á Leikni R. í eina bikarleik kvöldsins hér á landi.

Þórsarar voru sterkari aðilinn í bragðdaufum fyrri hálfleik þar sem Aron Ingi Magnússon kom boltanum í netið en ekki dæmt mark vegna rangstöðu. Aron Ingi skoraði svo á 45. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Ingimar Arnari Kristjánssyni.

Síðari hálfleikurinn var talsvert fjörugari en það voru heimamenn sem voru áfram með undirtökin og tvöfölduðu forystuna verðskuldað á 67. mínútu. Ion Perelló skoraði þá eftir flotta sókn en gestirnir úr Breiðholti vöknuðu til lífsins.

Leiknismenn náðu að minnka muninn með marki frá Róberti Haukssyni og komust nálægt því að jafna í tvígang en boltinn rataði ekki í netið. Þórsarar björguðu á marklínu áður en Ingimar Arnar innsiglaði sigurinn á 82. mínútu.

Niðurstaðan varð sanngjarn 3-1 sigur Þórs, en Leiknismenn áttu góðan kafla í seinni hálfleik þar sem þeir komust nálægt því að jafna leikinn.


Athugasemdir
banner
banner