Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. júní 2018 17:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Iceland stríðir samkeppnisaðilunum - „Hversu mörg stig eruð þið með?"
Icelandair
Mynd: Getty Images
Matvöruverslunin Iceland nýtur mikilla vinsælda í Bretlandi sem og hér á landi.

Sá sem sér um Twitter-síðu Iceland í Bretlandi sá sér leik á borði þegar Ísland gerði frábært jafntefli við Argentínu á Heimsmeistaramótinu í dag.

„Hversu mörg stig eruð þið með á HM?" var skrifað á Twitter-reikning Iceland eftir jafnteflið í dag, en í tístinu voru samkeppnisaðilar Iceland merktir.

Matvöruverslanakeðjan Iceland hefur verið dugleg að nota íslenska fótboltalandsliðið í markaðssetningu en þar á bæ gerðu menn það líka á meðan EM stóð fyrir tveimur árum.

Þeir hjá Iceland vonast efalaust til þess að Íslandi gangi sem best á Heimsmeistaramótinu.

Sjá einnig:
Iceland styður Ísland... - Starfsfólk tók Víkingafagnið



Athugasemdir
banner
banner