Fyrirliði íslenska landsliðsins, Aron Einar Gunnarsson lék 75 mínútur í fyrsta leik Íslands á Heimsmeistaramótinu, þegar Ísland mætti Argentínu.
Aron Einar hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og mikil óvissa ríkti um þátttöku Arons á HM.
Aron Einar hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og mikil óvissa ríkti um þátttöku Arons á HM.
Aron Einar hefur þó náð undraverðum bata undanfarna daga og náði hann eins og fyrr segir að leiða liðið inn á völlinn í fyrsta leik Íslands á HM frá upphafi.
Staðan í leiknum þegar þetta er skrifað er jöfn 1-1 en Alfreð Finnbogason jafnaði metin fyrir Ísland eftir að Aguero kom Argentínumönnum yfir.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu frá Rússlandi
Athugasemdir