lau 16. júní 2018 23:00
Gunnar Logi Gylfason
Lewandowski: Fylgir því pressa að spila með Póllandi
Lewandowski í leik með Póllandi
Lewandowski í leik með Póllandi
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski, framherji Póllands, segir það fylgi því eilíf pressa að spila fyrir pólska landsliðið.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hjálpaði Póllandi að enda í efsta sæti undanriðilsins fyrir HM með því að setja markamet þar sem hann skoraði 16 mörk fyrir Pólland.

„Pólska þjóðin trúir alltaf og býst við miklu," sagði framherjinn.

„Ég tel síðasta tímabil hafa verið dálítið frábrugðið tímabilinu fyrir EM 2016," sagði hann við heimasíðu FIFA.

„Ég spilaði færri leiki núna svo ég er ekki jafn þreyttur. Ég vona að ferskleikinn muni hjálpa mér á HM. Jafnframt hefur undirbúningurinn verið persónulegur, sniðinn að þörfum hvers og eins leikmanns."

Pólland hefur leik á HM á þriðjudaginn þegar liðið leikur gegn Senegal en sá leikur hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner