Ísland gerði 1-1 jafntefli við Argentínu í dag, eins og flestir vita.
Þessu jafntefli hefur í raun verið líkt við sigur fyrir okkur Íslendinga enda fyrsti leikur í sögu Íslands á HM og það ekki gegn neinum aukvisum.
Mikið var fagnað út um allt land og náðist myndband af rosalegum fögnuði Íslendinga eftir að lokaflautið gall í dag.
Myndbandið má sjá hér.
Næsti leikur Íslands á HM er gegn Nígeríu föstudaginn 22. júní.
Athugasemdir