Tveir leikir fóru fram í 4. deildinni í dag þar sem Fenrir og KFS unnu leiki sína á heimavelli.
Fenrir hafði betur gegn Herði frá Ísafirði og náði þar með í fyrstu stigin sín í sumar. Fenrismenn eru á botni C-riðils með þrjú stig eftir sex umferðir. Hörður er með sex stig.
C-riðill:
Fenrir 3 - 0 Hörður Í.
1-0 Örvar Þór Sveinsson ('3)
2-0 Andri Már Ágústsson ('22)
3-0 Unnsteinn Almar Jónasson ('67)
Rautt spjald: Haukur Björn Guðnason, Fenrir ('59)
Í D-riðli skoraði Birkir Hlynsson fimm mörk er KFS valtaði yfir Kóngana í Vestmannaeyjum.
Eyjamenn skoruðu níu mörk í leiknum, fimm í fyrri hálfleik og fjögur eftir leikhlé.
KFS er með sex stig eftir fimm umferðir en Kóngarnir eru á stigalausir á botninum, með markatöluna 4-53.
D-riðill:
KFS 9 - 0 Kóngarnir
1-0 Eyþór Daði Kjartansson ('3)
2-0 Eyþór Daði Kjartansson ('7)
3-0 Birkir Hlynsson úr víti ('27, víti)
4-0 Ágúst Marel Gunnarsson ('33)
5-0 Birkir Hlynsson ('37)
6-0 Daníel Már Sigmarsson ('54)
7-0 Sæbjörn Sævar Jóhannsson ('72)
8-0 Birkir Hlynsson ('87)
9-0 Birkir Hlynsson ('89)
Stöðutöfluna er hægt að sjá hér fyrir neðan. Það tekur tíma fyrir hana að uppfæra sig.
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir