Suður-Ameríku bikarinn, Copa America, heldur áfram í dag og verða tveir leikir spilaðir.
Klukkan 19:00 í kvöld spilar Paragvæ við Katar. Japan og Katar eru gestalið á mótinu, eins undarlegt og það hljómar. Knattspyrnusamband Suður-Ameríku krefst þess að tólf lið að lágmarki taki þátt í mótinu og var Katar og Japan boðið að taka þátt.
Katar, sem heldur HM 2022, hefur leik í kvöld, en annar leikur kvöldsins hefst klukkan 22:00. Þá mætast Úrúgvæ og Ekvador. Úrúgvæ er með vel mannað lið og þykja líklegir til afreka á þessu móti.
Hægt verður að horfa á báða leikina í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2.
Leikir dagsins:
19:00 Paragvæ - Katar (Stöð 2 Sport)
22:00 Úrúgvæ - Ekvador (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir