Heimild: Daily Mail
Fulham hefur áhuga á Adam Forshaw miðjumanni Leeds United.
Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og ætlar Scott Parker þjálfari Fulham að bæta miðjuna hjá sér fyrir komandi tímabil.
Forshaw sem er 27 ára gamall kom til Leeds frá Middlesbrough á 4,5 milljónir punda fyrir síðasta tímabil.
Leeds náði ekki að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Fulham sér hann sem leikmann sem hjálpar þeim í að halda boltanum og vera kjarninn í spili liðsins.
Athugasemdir