Heimild: Daily Mail
Tanguy Ndombele miðjumaður Lyon hefur verið orðaður við Tottenham undanfarna daga og eru Lyon og Tottenham í viðræðum um leikmanninn.
Lyon er búið að skella 70 milljón evra verðmiða á Ndombele og talaði hann nýlega hlýlega um Tottenham.
Í viðtali við Telefoot sagði Ndombele „Já það er satt, Tottenham er frábært félag og stórt félag. Hvaða leikmaður myndi ekki hafa áhuga á svona stóru félagi"
Ndombele skoraði þrjú mörk og lagði upp átta í 49 leikjum á síðasta tímabili.
Pochettino þjálfari Tottenham vill fá nýja leikmenn á miðjuna hjá sér og eru Ndombele, Ryan Sessgnon leikmaður Fulham og Jack Clarke leikmaður Leeds einnig verið orðaðir við félagið
Athugasemdir