Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. júní 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Richarlison búinn að biðja Neres um að koma til Everton
Mynd: Getty Images
Richarlison var í byrjunarliði Brasilíu þegar liðið vann 3-0 sigur á Bólivíu í opnunarleik Copa America, Suður-Ameríku bikarsins aðfaranótt laugardags.

David Neres, 22 ára gamall kantmaður Ajax, var einnig í byrjunarliði Brasilíu, en hann hefur verið orðaður við Everton.

„Ég hef lesið eitthvað um þetta," sagði Richarlison í viðtali við Liverpool Echo þegar hann var spurður út í Neres-orðrómin eftir landsleik Brasilíu og Bólivíu.

„Ég er búinn að tala við hann um þetta og segja honum að dyrnar séu opnar. Hann myndi hjálpa okkur mikið. Vonandi mun ég sjá hann hjá Everton."

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er leikmaður Everton og það yrði spennandi að sjá hann, Richarlison og David Neres saman á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner