Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 16. júlí 2018 18:27
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Fylkis og KR: Glenn ekki í leikmannahópi Fylkis
Jonathan Glenn er ekki með í dag
Jonathan Glenn er ekki með í dag
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Núna klukkan 19:15 hefst leikur Fylkis og KR í Pepsi-deild karla í Egilshöllinni. Fylkir situr fyrir leikinn í ellefta sæti deildarinnar með 11 stig á meðan að KR er í því áttunda með 14 stig.

Heimamenn í Fylki gera fjórar breytingar á liði sínu frá 3-2 tapinu gegn Víkingi R. í síðustu umferð. Helgi Valur og Emil Ásmundsson eru báðir í leikbanni en auk þeirra koma þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Jonathan Glenn úr liðinu en sá síðarnefndi er ekki í leikmannahópi Fylkis.

KR-ingar halda sig hins vegar við sama lið og gerði 1-1 jafntefli við Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð. Björgvin Stefánsson sem að hefur verið í agabanni hjá félaginu er í liðstjórn. Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson (f)
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Oddur Ingi Guðmundsson
7. Daði Ólafsson
9. Hákon Ingi Jónsson
10. Andrés Már Jóhannesson
14. Albert Brynjar Ingason
19. Ragnar Bragi Sveinsson
23. Ari Leifsson

Byrjunarlið KR:
30. Beitir Ólafsson (m)
2. Morten Beck
4. Albert Watson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
8. Finnur Orri Margeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
15. André Bjerregaard
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner