Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 16. júlí 2018 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Inkasso-kvenna: Fylkir setti fimm gegn ÍR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 0 - 5 Fylkir
0-1 Hanna María Jóhannsdóttir ('13)
0-2 Hulda Sigurðardóttir ('24)
0-3 Þóra Kristín Hreggviðsdóttir ('60, víti)
0-4 Bryndís Arna Níelsdóttir ('75)
0-5 Sæunn Rós Ríkharðsdóttir ('85)

Gæðamunur liðanna var augljós er ÍR tók á móti Fylki í síðasta leik kvöldsins í Inkasso-deild kvenna.

Hanna María Jóhannnsdóttir og Hulda Sigurðardóttir gerðu mörk gestanna í fyrri hálfleik. Þóra Kristín Hreggviðsdóttir gerði svo þriðja markið úr vítaspyrnu.

Bryndís Arna Níelsdóttir og Sæunn Rós Ríkharðsdóttir bættu við mörkum á síðasta stundarfjórðungnum og innsigluðu auðveldan fimm marka sigur.

Fylkir er í öðru sæti, einu stigi eftir taplausu toppliði Keflvíkinga. Fylkir er með 21 stig eftir átta umferðir. ÍR er í sjötta sæti, með átta stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner