Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 16. júlí 2018 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jorginho: Hef beðið lengi eftir þessum félagaskiptum
Mynd: Chelsea
Brasilíski Ítalinn Jorginho er himinlifandi með að vera búinn að skrifa undir samning við fyrrverandi Englandsmeistara Chelsea.

Jorginho kemur til félagsins frá Napoli ásamt Maurizio Sarri, sem tekur við stjórnartaumunum af Antonio Conte.

Englandsmeistarar Manchester City voru búnir að vera á höttunum eftir Jorginho lengi en Napoli hagnaðist meira á því að selja hann til Lundúna.

„Ég er gjörsamlega í skýjunum með að vera kominn hingað. Það er frábært að vera partur af svona stórum klúbbi, ég er ótrúlega ánægður," sagði Jorginho við Chelsea TV.

„Ég hlakka til að æfa með nýju liðsfélögunum, ég hef beðið lengi eftir þessum félagaskiptum."
Athugasemdir
banner
banner