Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 16. júlí 2018 08:40
Magnús Már Einarsson
Lars sjötugur í dag - Fær kveðju frá KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, fagnar sjötugs afmæli sínu í dag.

Lars tók við íslenska landsliðinu seint árið 2011 og undir hans stjórn náði liðið mögnuðum árangri.

Ísland fór í umspil um sæti á HM 2014 og fór í 8-liða úrslit á EM 2016 undir stjórn Lars.

Heimir Hallgrímsson var þjálfari ásamt Lars á EM en eftir það mót steig Svíinn til hliðar og Heimir hélt einn áfram.

Lars þjálfar í dag norska landsliðið en KSÍ sendi honum góða afmæliskveðju á Twitter í tilefni dagsins.

Athugasemdir
banner
banner
banner