Enska pressan greinir frá því í dag að Manchester United sé að undirbúa tilboð í Leonardo Bonucci, varnarmann AC Milan á Ítalíu.
Talið er að United ætli að bjóða um 30 milljónir punda í leikmanninn.
Mourinho er bjartsýnn á að samningsviðræður gangi í gegn en hann hefur áður gefið út að hann ætli að fá til sín nýjan miðvörð í sumar á sem minnstan pening.
Bonucci gekk til liðs við AC Milan sumarið 2017 á 5 ára samning er hann kom frá Juventus fyrir 42 milljónir punda.
Athugasemdir