Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. júlí 2018 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mbappe ánægður hjá PSG: Sé fram á farsæl ár
Mynd: Getty Images
Franska ungstirnið Kylian Mbappe segist ekki vera á förum frá Paris Saint-Germain á næstunni þrátt fyrir að vera orðaður við Real Madrid.

Táningurinn var keyptur til Parísar fyrir svimandi háa upphæð og er næstdýrasti knattspyrnumaður sögunnar eftir Neymar.

Mbappe hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár og sýndi allri heimsbyggðinni hvað í sér býr er hann vann heimsmeistaramótið með Frakklandi í gær.

Mbappe var meðal bestu leikmanna mótsins og er augljóslega meðal hæfileikaríkustu knattspyrnumanna hnattarins.

„Ég verð áfram hjá PSG í sumar. Ég er á upphafi ferilsins og sé fram á að eiga farsæl ár í höfuðborginni," sagði Mbappe þegar hann var spurður út í nánustu framtíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner