Helgi Mikael Jónasson verður dómari á leik rúmenska liðsins Universitatea Craiova og Sabail frá Aserbaídsjan í undankeppni Evrópudeildar UEFA, en liðin mætast í Rúmeníu á fimmtudag.
Aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Bryngeir Valdimarsson, og varadómari verður Ívar Orri Kristjánsson.
Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Tyrkinn Mehmet Murat Ilgaz.
Universitatea Craiova vann fyrri leik liðanna 3-2 í Aserbaídsjan og er því í góðri stöðu fyrir heimaleikinn.
Athugasemdir