Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. júlí 2019 08:34
Magnús Már Einarsson
Inter leggur fram tilboð í Lukaku í vikunni
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter mun væntanlega leggja fram tilboð í Romelu Lukaku framherja Manchester United í þessari viku að sögn Sky Sports.

Tilboðið hljóðar upp á 60 milljónir pund auk bónusa.

Inter vill borga upphæðina á næstu tveimur til þremur árum.

Stjórnarmaður Inter sagði í síðustu viku að Manchester United vilji fá meira en 75 milljónir punda fyrir Lukaku en það er upphæðin sem hann kostaði United þegar hann kom til félagsins.

Þrjár vikur eru í að félagaskiptaglugginn loki á Englandi og líklegt er að Manchester United kaupi mann í staðinn ef Lukaku verður seldur.
Athugasemdir
banner