Þýska félagið RB Leipzig er búið að ná samkomulagi við Everton um kaup á enska vængmanninum Ademola Lookman. Fréttastofa Sky Sports greinir frá.
Lookman er 21 árs gamall en hann kom til Everton frá Charlton árið 2017.
Hann var lánaður til Leipzig í janúar á síðasta ári og gerði 5 mörk í 11 leikjum í þýsku deildinni áður en hann sneri aftur til Everton.
Hann spilaði 24 leiki og skoraði 1 mark fyrir enska félagið á síðustu leiktíð en átti ekki fast sæti í liðinu.
Samkvæmt Sky Sports er Lookman á leið til Leipzig og er kaupverðið 22,5 milljónir punda. Hann gerir langtímasamning við Leipzig.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Leipzig fær í sumar en Hannes Wolf kom frá RB Salzburg og þá kom Luan Candido frá Palmeiras.
Athugasemdir