Ýmsir enskir miðlar greina frá því í dag að Kieran Trippier, hægri bakvörður Tottenham, sé á leið til Atletico Madrid.
Trippier er sagður vera á leið í læknisskoðun í Madrid en kaupverðið er í kringum 25 milljónir punda.
Trippier er sagður vera á leið í læknisskoðun í Madrid en kaupverðið er í kringum 25 milljónir punda.
Trippier spilaði mikið með Tottenham á síðasta tímabili en hann fékk talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína.
Þessi 28 ára gamli leikmaður kom til Tottenham frá Burnley árið 2015 á 3,5 milljónir punda.
Hann er nú óvænt á leið til Atletico Madrid en skiptin ganga væntanlega í gegn fyrir helgi.
Athugasemdir