Hinn 18 ára gamli Takefusa Kubo hefur heldur betur heillað áhugamenn um fótbolta upp úr skónum eftir að Real Madrid sýndi klippu af honum á æfingu með aðalliði félagsins.
Kubo kom til Real Madrid frá Tokyo FC í júní og gerði hann fimm ára samning en hann var áður í akademíu Barcelona frá 2011-2015 og skoraði 74 mörk í 30 leikjum fyrir U11 ára liðið áður en hann var færður í U14 ára liðið.
Börsungar misstu hann frá sér eftir að upp komst að félagið braut reglur varðandi það að fá leikmenn undir 18 ára aldri og fór hann því aftur til Japan.
Hann skrifaði eins og áður segir undir fimm ára samning í sumar við Real Madrid og lofar hann afar góðu.
„Í Japan er fólk með mikla ástríðu fyrir Real Madrid og ég er mjög stoltur að fá að spila fyrir stærsta félag heims," sagði Kubo.
Hér fyrir neðan má sjá takta frá honum á æfingu aðalliðsins.
Real Madrid signed 18-year-old Takefusa Kubo in the summer from FC Tokyo and he looks insane.
— BSN (@BallStreet) July 15, 2019
Do you know how much he cost them? Nothing. pic.twitter.com/xbiOnnBrlM
Athugasemdir