Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. júlí 2020 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Palace og Man Utd: Fernandes bestur
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes var útnefndur besti leikmaður vallarins af Sky Sports er Manchester United lagði Crystal Palace að velli á Selhurst Park.

Wilfried Zaha og Jordan Ayew voru líflegir í sóknarlínu Palace og fá báðir 8 fyrir sinn þátt þó Palace hafi ekki tekist að skora mark í leiknum.

Mamadou Sakho var versti maður heimamanna og fær hann 5 í einkunn.

Fernandes fær 9 fyrir sinn þátt í leiknum, einum meira en David De Gea, Anthony Martial og Marcus Rashford.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Rauðu djöflana sem eru komnir upp að hlið Leicester City í Meistaradeildarbaráttunni.

Crystal Palace: Guaita (6), Ward (6), Van Aanholt (7), Dann (7), Sakho (5), McArthur (7), McCarthy (7), Milivojevic (6), Townsend (7), Zaha (8), Ayew (8)
Varamenn: Mitchell (6), Schlupp (6)

Man Utd: De Gea (8), Fosu-Mensah (7), Lindelof (7), Maguire (7), Wan-Bissaka (6), McTominay (7), Pogba (6), Fernandes (9), Greenwood (6), Martial (8), Rashford (8)
Varamenn: Matic (7), Lingard (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner