Keflavík og Tindastóll deila áfram toppsæti 1. deildar kvenna eftir góða sigra gegn ÍA og Gróttu í kvöld.
Marín Rún Guðmundsdóttir kom Keflavík yfir undir lok fyrri hálfleiks gegn ÍA.
Leikurinn var nokkuð jafn en Keflvíkingar gerðu út um leikinn með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla. Amelía Rún Fjeldsted og Natasha Moraa Anasi skoruðu mörkin.
Fríða Halldórsdóttir minnkaði muninn fyrir Skagastúlkur en nær komust þær ekki og lokatölur 3-1.
Keflavík er með þrettán stig eftir fimm umferðir. ÍA er með sex stig.
Keflavík 3 - 1 ÍA
1-0 Marín Rún Guðmundsdóttir ('45)
2-0 Amelía Rún Fjeldsted ('64)
3-0 Natasha Moraa Anasi ('65)
3-1 Fríða Halldórsdóttir ('70)
Hugrún Pálsdóttir og Jacqueline Altschuld gerðu mörk Stólanna gegn Gróttu í hnífjöfnum leik og sita Seltirningar eftir í fjórða sæti með átta stig.
Haukar eru einnig með átta stig eftir óvænt tap á heimavelli gegn Víkingi R. sem vann sinn fyrsta leik og er með fjögur stig.
Haukar fengu tækifæri til að komast aftur í leikinn en Vienna Behnke misnotaði vítaspyrnu og innsiglaði Stefanía Ásta Tryggvadóttir sigur Víkings skömmu síðar.
Að lokum hafði Augnablik betur gegn Fjölni. Birta Birgisdóttir og Ísafold Þórhallsdóttir gerðu mörkin í fyrri hálfleik.
Augnablik er með fjögur stig eftir fyrsta sigur sinn á tímabilinu. Fjölnir er með þrjú stig.
Grótta 0 - 2 Tindastóll
0-1 Hugrún Pálsdóttir ('30)
0-2 Jacqueline Altschuld ('69)
Haukar 1 - 3 Víkingur R.
0-1 Stefanía Ásta Tryggvadóttir ('56, víti)
0-2 Nadía Atladóttir ('65)
0-2 Vienna Behnke ('76, misnotað víti)
0-3 Stefanía Ásta Tryggvadóttir ('83)
1-3 Birna Kristín Eiríksdóttir ('90)
Augnablik 2 - 0 Fjölnir
1-0 Birta Birgisdóttir ('27)
2-0 Ísafold Þórhallsdóttir ('38)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir