Augnablik tók á móti Fjölni í 5. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld og þar unnu Augnablik öruggan 2:0 sigur. Vilhjálmur, þjálfari Augnabliks, hafði þetta að segja eftir leik:
Lestu um leikinn: Augnablik 2 - 0 Fjölnir
"Jú það er mikill léttir að fá fyrsta sigurinn en við byrjuðum reyndar á erfiðu prógrammi en það er gott að fá heimaleik og gott að fá sigur. Við erum staðráðin í því að gera vel."
"Þetta spilaðist mjög vel í fyrri hálfleik og við sköpuðum fullt af góðum færum. Seinni hálfleikur var kannski aðeins erfiðari, þær voru sterkar og pressuðu okkur soldið þannig að við náðum ekki að spila okkar besta leik þá. En þær áttu góðan leik þá en sem betur fer héldum við einbeitingu og héldum þetta út."
Augnablik leikur næst við ÍA en glöggir muna eftir að Augnablik datt einmitt út úr Mjólkurbikarnum eftir leik við ÍA fyrir viku síðan.
"Jújú við erum nýbúnar að vera upp á Skaga að spila og mjög svekkt og sár eftir þann leik sem ég vona að dugi í undirbúningnum fyrir þann leik. Við munum koma brjálaðar til leiks."
Nánar er rætt við Vilhjálm í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir