Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. júlí 2021 22:14
Victor Pálsson
Ben White fer til Arsenal á 50 milljónir - Læknisskoðun í lok mánaðar
Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að ná samkomulagi við Brighton um kaup á miðverinum öfluga Ben White.

Sky Sports greinir frá þessu í kvöld en Arsenal borgar 50 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn.

Sky tekur fram að White muni gangast undir læknisskoðun þann 26. júlí er hann snýr heim úr sumarfríi.

White er 23 ára gamall en hann hefur leikið með Brighton frá 2016 og þá með Newport, Peterborough og Leeds á láni.

Hann vakti fyrsta athygli með Leeds í Championship-deildinni og svo með Brighton í vetur.

White hefur spilað tvo landsleiki fyrir England og var með á EM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner