Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. júlí 2021 19:01
Victor Pálsson
Danmörk: OB vann opnunarleikinn gegn Midtjylland
Mynd: Getty Images
Það fór fram Íslendingaslagur í Danmörku í kvöld er lið Midtjylland fékk OB í heimsókn í opnunarleik deildarinnar.

Einn Íslendingur var í byrjunarliði OB en Aron Elís Þrándarson spilaði 73 mínútur í leik sem vannst 2-1.

Mikael Neville Anderson var á varamannabekk Midtjylland en kom inná seint í síðari hálfleik í stöðunni 1-1.

Jorgen Skjelvik, fyrrum leikmaður LA Galaxy, skoraði sigurmark OB á 91. mínútu í dramatískum sigri.

Elías Rafn Ólafsson er varamarkvörður Midtjylland en hann sat allan tímann á varamannabekk liðsins.
Athugasemdir
banner
banner