Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. júlí 2021 18:53
Victor Pálsson
Giroud þakkar fyrir sig - Upplifði sérstök augnablik
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud er að kveðja lið Chelsea á Englandi en hann hefur nú sagt bless við stuðningsmenn félagsins.

Giroud gekkst undir læknisskoðun hjá AC Milan í dag en hann er keyptur til ítalska liðsins fyrir um eina milljón evra.

„Til allra í bláu, til allra liðsfélagana, til allra þjálfara og til félagsins þá vil ég þakka fyrir sérstök augnablik," skrifaði Giroud á meðal annars á Twitter í dag.

Giroud vann nokkra titla með Chelsea og þá síðast Meistaradeildina sem liðið vann í sumar.

Einnig fagnaði Frakkinn sigri í FA bikarnum og Evrópudeildinni en hann kom til félagsins frá Arsenal árið 2018.

Giroud skoraði 17 deildarmörk í 75 leikjum fyrir Chelsea og 39 mörk í 119 leikjum í öllum keppnum.


Athugasemdir
banner
banner