fös 16. júlí 2021 23:30
Victor Pálsson
Klopp: Enginn að flýta sér burt
Mynd: Getty Images
Það er enginn leikmaður Liverpool sem vill komast burt frá félaginu að svo stöddu segir stjóri félagsins, Jurgen Klopp.

Liverpool hefur nú þegar keypt leikmann í sumar en varnarmaðurinn Ibrahima Konate kom til félagsins frá RB Leipzig.

Klopp segir að enginn leikmaður hafi beðið um sölu til þessa og talar einnig um að glugginn sé mjög rólegur miðað við síðustu ár.

„Ef einhver vill fara þá getur hann komið til mín og tjáð mér það - ég hugsa svo um það í kjölfarið," sagði Klopp.

„Enginn hefur rætt við mig hingað til svo leikmenn eru ekki að flýta sér. Markaðurinn er mjög rólegur núna að mínu mati."

„Það var Jadon Sancho og kannski ein hver annar, allt í lagi. Konate, við fengum hann snemma en glugginn er rólegur."
Athugasemdir
banner
banner
banner