Framherjinn Lukas Nmecha er að ganga í raðir Wolfsburg samkvæmt heimildum Daily Mail á Englandi.
Nmecha hefur verið lengi á mála hjá City en verið lánaður í burtu undanfarin ár. Mail segir frá því að félagið sé nálægt því að selja framherjann á ellefu milljónir punda.
Nmecha var hjá Wolfsburg á láni árið 2019 en á síðasta tímabili lék hann með Anderlecht og skoraði 21 mark undir stjórn Vincent Kompany.
Nmecha er 22 ára og skoraði hann sigurmark Þýskalands á EM U21 árs liða í júní. Hann getur valið að spila fyrir A-landslið Þýskalands, Englands eða Nígeríu.
Sjá einnig:
Nígería vill fá hetju Þjóðverja í sitt landslið - Getur einnig valið England
Athugasemdir