Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, var hæstánægð þegar hún mætti í viðtali eftir 4-0 sigur á FH í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Álfhildur er fyrirliði uppeldisfélagsins sem er komið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik frá upphafi.
Álfhildur er fyrirliði uppeldisfélagsins sem er komið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik frá upphafi.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 - 0 FH
„Þetta er eins og draumur að rætast. Þetta er geggjuð tilfinning," sagði Álfhildur eftir leik.
„Þær lágu mjög hart á okkur og þetta var erfitt á köflum. Þegar var komið inn í seinni hálfleikinn þá fannst mér við hafa yfirhöndina," sagði fyrirliðinn en það má segja að markaveisla hafi byrjað þegar leið á seinni hálfleikinn.
„Við gáfumst ekki upp og vorum að mæta í alla bolta. Við náum öðru markinu og þá var þetta komið hjá okkur."
Það er ekki langt síðan Þróttur var í 1. deild en núna er liðið búið að festa sig í sessi í efstu deild og komið í bikarúrslit.
„Þetta er auðvitað mikil vinna, við þurfum að skipuleggja okkur vel fyrir hvern einasta leik og æfa mikið," segir Álfhildur en hvernig er Þróttaraliðið komið á þennan stað?
„Stjórnin er búin að standa sig ótrúlega vel. Nik kom inn í þetta mjög vel og gerði þetta lið að atvinnumannaliði eins og þetta er núna. Hann breytti því. Svo erum við stelpurnar ótrúlega duglegar, samheldnar og vinnum þetta vel saman."
„Ég er ótrúlega stolt af þessu liði og það er mjög góð tilfinning að fá að leiða það í bikarúrslitaleikinn."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir