Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. júlí 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spezia á leið í tveggja ára félagaskiptabann
Spezia á leið í félagaskiptabann
Spezia á leið í félagaskiptabann
Mynd: Getty Images
Spezia er á leið í tveggja ára félagaskiptabann og hefst bannið í janúar á næsta ári.

Félagið fer í bann vegna kaupa á leikmönnum sem hafa ekki náð átján ára aldri.

Spezia mun ekki geta fengið nýja leikmenn inn í næstu fjórum félagaskiptagluggum.

Spezia hélt sér uppi í Serie A á liðinni leiktíð, liðið endaði í 15. sæti deildarinnar í vor. Félagið má fá inn leikmenn í þessum sumarglugga.

Sveinn Aron Guðjohnsen er leikmaður Spezia en hann æfir þessa dagana með danska félaginu SönderjyskE.
Athugasemdir
banner
banner
banner