Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júlí 2022 16:50
Brynjar Ingi Erluson
Everton lánar Branthwaite til PSV
Branthwaite er mættur til Hollands og mun gangast undir læknisskoðun um helgina
Branthwaite er mættur til Hollands og mun gangast undir læknisskoðun um helgina
Mynd: PSV
Enski varnarmaðurinn Jarrad Branthwaite er að ganga í raðir PSV á láni frá Everton en þetta staðfestir hollenska félagið á heimasíðu sinni í dag.

Branthwaite er tvítugur og spilar stöðu miðvarðar en hann var á láni hjá Blackburn Rovers á síðustu leiktíð.

Hann er nú á leið í ævintýri til Hollands en viðræður Everton og PSV eru á lokastigi.

Leikmaðurinn er mættur til Hollands og fer í læknisskoðun hjá félaginu um helgina áður en hann verður kynntur.

Branthwaite hefur spilað 13 leiki fyrir Everton og gert eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner