Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 16. júlí 2022 20:57
Stefán Marteinn Ólafsson
Kristall Máni: Ég held að þetta sé síðasti leikurinn minn í deildinni
Kristall Máni Ingason leikmaður Víkings R.
Kristall Máni Ingason leikmaður Víkings R.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Víkingar heimsóttu FH þegar 13.umferð Bestu deildar karla hóf göngu sína núna í kvöld með eina leik kvöldsins.

Víkingar höfðu fyrir leikinn unnið síðustu fimm leiki í röð og á því varð enginn breyting í kvöld þegar sá sjötti bættist við en Víkingar höfðu betur með þremur mörkum gegn engu.

Lestu um leikinn: FH 0 -  3 Víkingur R.

„Þetta var bara ekkert spes leikur hjá okkur, við spiluðum þetta bara fínt og fínt að ná inn 3-0 sigri þannig maður getur ekki kvartað neitt." Sagði Kristall Máni Ingason leikmaður Víkings eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst ég vera fínn, ekkert eitthvað rosalegur en ég gerði það sem þurfti að gera, hlaupa og bara berjast en ég hefði viljað ná inn einu marki." 

Kristall Máni Ingason taldi þetta vera sinn síðasta leik í deildinni fyrir Víkinga en það verða svo sannarlega miklar sjónarsviptir að missa hann úr Bestu deildinni.
„Þetta var held ég síðasti leikurinn minn í deildinni. Það er leiðinlegt að vera fara en síðan er bara nýtt verkefni sem maður er spenntur fyrir." 

Víkingur mætir Stjörnunni næst í deild en eins og áður kom fram býst Kristall Máni ekki við að spila þann leik.
„Ég veit ekki alveg hvenær sá leikur er en allavega fyrir leikinn þá hélt ég að þetta væri síðasti leikurinn minn og ég held að þetta sé síðasti leikurinn minn." 

Kristall Máni er eins og fram hefur komið búin að skrifa undir hjá Rosenborg í Noregi og lýst honum vel á verkefnið þar fyrir hendi.
„Staðan á liðinu er flott, þeir eru ekkert langt frá toppsætinu og ég vona að ég komi bara inn í þetta og við höldum því áfram og færumst nær toppnum og vonandi bara endum við á toppnum."

Nánar er rætt við Kristal Mána Ingason í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner