Cristiano Ronaldo gekk til liðs við Manchester United, aftur, síðasta sumar. Nú vill hann fara frá félaginu.
Honum mistókst að hjálpa liðinu að vinna sér sæti í Meistaradeildinni en hann vill spila í þeirri deild.
Teddy Sheringham fyrrum leikmaður Man Utd er bjartsýnn þó Ronaldo færi.
„Ég hálfpartinn sá þetta fyrir. Fólk er að segja að Ten Hag eigi að byggja upp liðið í kringum Ronaldo en ef hann vill fara þá á hann að fara. Það opnar nýja leið fyrir United," sagði Sheringham.
„Þeir gætu náð í 2-3 leikmenn fyrir þessi laun og það er mikill peningur í hverjum mánuði. Lífið heldur áfram, hann vill fara og spila annarsstaðar svo náið í leikmenn sem þið vitið að verði góðir og stöðugir yfir tímabilið."
Athugasemdir