Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. ágúst 2018 12:25
Elvar Geir Magnússon
Bróðir Pogba of feitur - Fékk ekki samning hjá KFC
Mathias Pogba er 27 ára.
Mathias Pogba er 27 ára.
Mynd: Getty Images
Mathias Pogba, bróðir Paul Pogba, er án félags og á í vandræðum með að fá samning.

Hann var leystur undan samningi við Spörtu í Rotterdam í Hollandi á síðasta ári og æfði með þýska 3. deildarliðinu KFC Uerdingen á dögunum.

KFC ákvað hinsvegar ekki að bjóða honum samning og stjóri liðsins, Stefan Kramer, talaði hreint út um ástæðu þess.

„Mathias hefur þegar yfirgefið okkur. Hann hefði ekki bætt liðið okkur. Hann er í vondu formi. Mathias er stór gaur og er með góðan líkama til að vera fremsti maður en það eru of mörg kíló kringum mjaðmirnar," sagði Kramer.
Athugasemdir
banner
banner
banner