Ainsley Maitland-Niles, varnarmaður Arsenal, verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar eftir að hafa brotið bein í fæti.
Hinn tvítugi Maitland-Niles byrjaði í vinstri bakverðinum hjá Arsenal í 2-0 tapinu gegn Manchester City um helgina.
Hinn tvítugi Maitland-Niles byrjaði í vinstri bakverðinum hjá Arsenal í 2-0 tapinu gegn Manchester City um helgina.
Maitland-Niles meiddist eftir barattu við Kyle Walker og varð að fara af velli á 35. mínútu.
Varnarmennirnir Laurent Koscielny, Carl Jenkinson og Sead Kolasinac eru einnig á meiðslalistanum hjá Arsenal.
Nacho Monreal er hins vegar byrjaður að æfa á ný eftir meiðsli og hann gæti spilað í vinstri bakverðinum gegn Chelsea um helgina.
Athugasemdir