Valur-Sheriff í kvöld klukkan 19:00
„Ég tel okkur ekkert vera síðri en þetta lið. Ef við hittum á góðan leik þá sláum við þá út," segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, um möguleikana fyrir leikinn gegn Sheriff í Evrópudeildinni í kvöld klukkan 19:00.
Sheriff er frá Moldavíu en liðið vann fyrri leikinn 1-0. Á meðal leikmanna liðsins eru menn frá Brasilíu, Króatíu, Belgíu og fleiri löndum.
„Þetta eru allra þjóða kvikindi eins og maður segir. Þetta er mjög fínt lið en þeir eru ekki betri en við. Þeir eru samt öflugir og við þurfum að hitta á nokkuð fínan leik til þess að vinna þá."
Sigurvegarinn í einvíginu í kvöld mætir Hannesi Þór Halldórssyni og félögum í Qarabag í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
„Við þurfum allan þann stuðning sem við getum mögulega fengið. Er ekki kominn tími á að við gerum eins og landsliðið og förum að nálgast það að komast í þessa riðla? Eigum við ekki að segja að félagsliðin séu næst?" sagði Óli að lokum.
Guðjón Pétur Lýðsson er tæpur fyrir leikinn í kvöld en aðrir leikmenn Vals eru klárir í slaginn.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild.
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn
Athugasemdir