Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. ágúst 2018 10:06
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Rooney með frábært aukaspyrnumark
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney heldur uppteknum hætti með DC United í bandarísku MLS-deildinni.

Hann leiddi sitt lið til sigurs gegn Portland Timbers, leikar enduðu 4-1 og skoraði Rooney tvívegis.

Það var seinna mark hans sem greip fyrirsagnirnar. Rooney skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu.

Rooney hefur nú skorað þrjú mörk í sjö leikjum fyrir DC sem er í 18. sæti ef báðir riðlarnir í MLS eru settir saman.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner