Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. ágúst 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Treyja frá Andra Rúnari á 1000 krónur
Mynd: CharityShirts
Bolvíkingurinn Andri Rúnar Bjarnason er með áritaða Helsingsborgs IF treyju á lottó uppboði til styrktar Parkinsonsamtakanna.

Hægt er að styðja þetta glæsilega málefni með því að fara inn á www.charityshirts.is og eiga möguleika á að vinna treyjuna hjá markaskoraranum Andra Rúnari fyrir aðeins 1000 kr.

Dreginn verður út vinningshafi í leiknum mánudaginn 20. ágúst kl. 19:00. Allur ágóði rennur til Parkinsonsamtakana. Það er sett markmið að hafa treyjur á lottó í hverri viku.

Lottóin virka að treyja er sett á uppboð í viku og að viku liðinni er lagt allan ágóða söfnuninnar til góðgerðarmáls. Þetta er þriðja lottóið sem CharityShirts stendur fyrir.

Fyrstu treyjuna átti Rúnar Alex og fór hún á 47.000kr til styrktar Styrktarfélagi Krabbameinssjúkra Barna og í síðustu viku safnaði Kári Árnason 39.000kr til styrktar Barnaspítalasjóðs Hringsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner