fim 16. ágúst 2018 17:30
Elvar Geir Magnússon
Vidal ætlar að berjast fyrir Barcelona
Arturo Vidal.
Arturo Vidal.
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, nýr miðjumaður Barcelona, segist ætla að berjast fyrir Barcelona og koma með leikstíl sinn inn í spænska stórliðið.

Sílemaðurinn kom frá Bayern München í sumar og lofar að gefa allt í að ná árangri með Barcelona.

„Ferill minn er byggður á því hvernig ég ólst upp. Ég ólst upp við að spila fótbolta á götunum og leikstíll minn er þannig. Maður lærir að berjast og það er kostur sem ég vil koma með til Barca," segir Vidal.

„Það hefur ekkert verið auðvelt í mínu lífi. Ég ólst upp í hættulegu umhverfi en móðir mín ól mig upp ásamt fimm bræðrum. Þetta snérist alltaf um að berjast og sýna anda."

„Líf mitt er orðið allt annað í dag en þetta eru ár sem ég mun aldrei gleyma."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner