Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 16. ágúst 2022 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nacho Monreal leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Nacho Monreal, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur lagt skóna á hilluna. Monreal er 36 ára gamall og lék á sínum tíma rúmlega 250 leiki fyrir Arsenal á árunum 2013-2018.

Monreal spilaði bæði sem vinstri bakvörður og miðvörður á sínum ferli. Hann er uppalinn hjá Pamplona og Osasuna en lék einnig með Malaga, Arsenal og Real Sociedad á sínum ferli.

Þá lék hann 22 landsleiki fyrir Spán á árunum 2009-2018. Monreal meiddist á hné í fyrra og missti af öllu síðasta tímabili. Hann varð samningslaus í vor og ákvað svo að leggja skóna á hilluna.

Monreal varð þrisvar sinnum bikarmeistari sem leikmaður Arsenal og einu sinni sem leikmaður Sociedad.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner