Albert Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir AZ Alkmaar þegar liðið mætti Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Albert kom AZ yfir eftir aðeins fimm mínútna leik en markið dugði ekki til sigurs þar sem Steven Berghuis jafnaði fyrir gestina í Feyenoord stuttu fyrir leikhlé.
Albert kom til AZ frá PSV Eindhoven í sumar en hann var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir AZ í hollensku úrvalsdeildinni. Hann þakkaði traustið með marki.
Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli. Albert og félagar í AZ eru með átta stig í fjórða sæti en Feyenoord er í þriðja sæti með 10 stig.
Albert var maður leiksins hjá AZ Alkmaar en faðir Alberts, íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson birti frábæra mynd eftir leikinn í dag. Myndin er gömul en á henni er Albert með Robin van Persie, sóknarmanni Feyenoord. Van Persie er fyrrum sóknarmaður Arsenal og Manchester United en hann spilar í dag með félaginu þar sem hann hóf ferilinn, Feyenoord.
Við myndina skrifar Gummi: „Þessir mættust í dag, annar þeirra skoraði."
Þessir mættust í dag, annar þeirra skoraði😉 #Gudmundsson #AZ #VanPersie #Eredivisie pic.twitter.com/TOK5OctYz7
— Gummi Ben (@GummiBen) September 16, 2018
AZ vs Feyenoord #MOTM 👊🏼 pic.twitter.com/YGo9OvhOFF
— Gummi Ben (@GummiBen) September 16, 2018
Athugasemdir